Press announcements
08-11-2012
(12:44)
CUP GOES SKUNK
The fat defence team, Hildibrandur is out after clash with hyper attacking team Savioli & Co.
Hildibrandurs boss took some rather silly decition before the game and bought a very expencive attacker, called Vincy.
When Himmi was asked about his new 'weapon' he said "The Savioli's made joke of him, calling him crazy man and they didnt even let him have the ball.
Himmi looked ashamed for his business and claimed that this Vinsanity will be sold as soon as possible.
The boys of Hildibrandur are thankful for the game despite a huge loss, 5-1 at Thule arena, hosting 72 thousand fans. It was fun! Thanks for the money!
The Cup Game (408454585)
Vinsanity (227794500)
16-10-2012
(00:00)
HEAD COACH SACKED
Atli Viðarsson has agreed to let go of the head coach job due to a loss of leadership. Atli has lead the team resent seasons and brought the team to second division.
But boss Himmi wants more and when Hildibrandur lost the final game in Fiorentina Fun Cup II, Himmi wanted more and sacked Mr. Viðarsson and hired the big danish, Dan Tollerud just few hours after the match.
"Though Atli has been fired, he will be revarded a seat in the team's Hall of Fame" Himmi stated.
New coach Tollerud is belived to gain some results in the Icelandic Cup and of course to win Fiorentina Fun Cup III.
Atli (36059878)
Dan (98928244)
07-10-2012
(03:36)
INGIMAGN PLAYS FOR ICELAND
Hildibrandur's favourite, Ingimagn Kristvaldsson has been called for the U20 national team of Iceland.
Ingimagn's form has been excellent past weeks and that gave him five stars for the friendly tie against Nicaraqua last friday. The Icelandic team was full of young icelanders, playing their first game for the national team against strong Nicaraqua.
"The Nicaraq's were older than we and had more experience" he said after the match. "It was a good lesson and I cant wait for the next game against Honduras."
Ingimagn is the second player from Hildibrandur who's joined the U20's as Villi Hólmgrímsson played 29 caps and stayed all time in exellent form. Villi aims at the A-team in two seasons or so.
Ingimagn(346831116)
Game(395738506)
Villi(30677120)
26-07-2012
(19:58)
MANNABREYTINGAR HJÁ HILDIBRAND
Íþróttafélagið Hildibrandur hefur fengið til sín ungan markmann til þjálfunar. Hann heitir Smári Ásbjörnsson og er tvítugur og á 13 leiki með U20 landsliði Íslands. Smári var keyptur á vandræðalega hátt verð en viðskiptin eru í þágu Íslands þar sem hann verður þjálfaður í vörn og föstum leikatriðum á næstu tímabilum en líklega verður hann seldur seinna til áframhaldandi þjálfunar í markvörslu.
Þegar aðalmarkmaður liðsins, Udo frétti að kaupin stæðu yfir, fór hann fram á að hann yrði settur á sölu og hefur hann þegar gengið frá samningi við Perúska liðið Chaska.
Einn ástsælasti leikmaður Hildibrands, Herra Hildibrandur og maðurinn með langa nafnið, Sven Erik Denning Hansen, er farinn frá félaginu. Sven hefur leikið með liðinu frá Desember 2009 þegar henn kom frá móðurfélagi sínu Morfarsenal fyrir 7,5 miljónir en um 150 miljónir fengust fyrir kappann.
Svens verður mikið saknað og ekki er víst að skarð hans verði fyllt í bráð.
03-06-2012
(23:05)
HILDIBRANDUR FER UPP UM DEILD - II.2
Hildibrandur hefur fært sig upp á skaftið eftir 2-0 sigur í umspilsleik gegn Vikings Iceland frá Hafnarfirði.
Hildibrandur spilar næstu tímabil í II.2 ásamt bróður sínum Sindra og strákunum hans í Mile High Club sem hefur verið á hraðferð upp úr IV.6 deildinni með skammri viðkomu í III deildinni.
Bæði liðin koma úr IV.6 eldinu og hlakkar stjórunum mikið til að fá að taka á hinum liðunum í II.2.
Hróðurinn hefur greinilega lagst vel í landsmenn því um 300 aðdáendur nýfallna liðsins Grassbumpers hafa komið í förmum til þess að gerast stuðningsmenn Hildibrands og stuðningsmaður númer 300 heitir Eiríkur Einarsson, hjúkrunarmaður frá Egilsstöðum. Hann getur sótt ávaxtakörfu á skrifstofu félagsins á Fáskrúðsfirði.
(18505) IV.6 er merkileg deild fyrir það eitt að hún er ein duglegasta deildin á Íslandi og fæðast nær nýjir stjórar á hverju tímabili en nú eru Yellow komnir þangað niður og má því búast við harðri keppni á komandi tímabili.
19-04-2012
(10:23)
HILDIBRANDUR VINNUR LITLA ÍS-KÓLA MÓTIÐ
Fyrr í vikunni lauk Litla Ís-Kóla Mótinu þegar The Seventy Sevens og Hildibrandur spiluðu til úrslita.
Liðin höfðu áður orðið samferða upp úr umspilinu og rústuðu mótherjum sínum í óspennandi leikjum um úrslitin.
Úrslitaleikurinn var engu að síður spennandi. Eftir 25 mínútna leik, tók hinn íslenski Marcus Wael á harða sprett og gaf boltann fyrir á Hallstein Hreggviðsson sem skóflaði honum eins og verkamaður í skurði, framhjá Paolo markverði. 1-0 fyrir Hildibrand.
Markið lífgaði uppá leikinn og liðin skiptust á að sækja og á 85 mínútu áttu 77 stórhættulega skyndisókn þegar Helge Åsen fékk háa sendingu frá hægri kantinum og jafnaði leikinn með flottu skoti.
Það stefndi því í jafntefli en Marcus, framherji Hildibrands og maður leiksins var á öðrum buxum. Eftir fima fótavinnu spilaði hann sig lausann og átti svo í engum vandræðum með að pota inn sigurmarkinu þegar tvær mínútur voru eftir.
Svo var fagnað í sódavatnsdrykkju fram eftir degi. Þá var allt búið.
Drekkum ÍS-KÓLA!
20-01-2012
(05:01)
GAT Í VASA HILDIBRANDS
Auður Seljan, Fjármálastjóri Hildibrands leitar nú af hárri fjárhæð sem horfið hefur af sparireikningi Íþróttafélagsins Hildibrands.
Nú í morgunn uppgötvaði Auður að nærri 160 milljónir höfðu horfið úr bókhaldinu frá því hún hafði skroppið út í bíl til að ná í farsímann sinn.
Eftir að hafa gert sér grein fyrir að milljónirnar væru horfnar, gekk hún hvæsandi á milli starfsfólks áður en hún náði stjóra félagsins, Himma og messaði duglega yfir honum. Samkvæmt heimildum félagsins á Auður að hafa sagt orð eins og "nánös, eiginhagsmunaseggur, níu milljónir, tap, hausinn."
Svo virtist sem hann vissi eitthvað meira um málið en aðrir því hann hafði, eins og áður „Misst sig aðeins í mannakaupum.“
Málinu var lokað með orðum Auðar, að Himmi gæti borgað þetta sjálfur, enn eina ferðina enn.
Hildibrandur eignaðist sóknarmann þennan morgunn. Marcus nokkurn Wael(274784010) en hann er fyrrum Kick & Runnari.
Er það engin furða að Auður hafi reiðst því hann er í hörmulegu formi.
11-01-2012
(19:07)
ER FERILLINN HJÁ HREIÐARSYNI BÚINN?
Varnarjaxlinn Daníel Hreiðarsson(248324190) meiddist í nára eftir þrusutæklingu andstæðings síns í liði Kurdstan frá Írak.
Meiðslin eru það slæm að Daníel verður frá næstu þrjár vikurnar en gæti jafnvel ekki spilað meira á tímabilinu enda er kappinn orðinn 35 ára gamall og meiðslin jafna sig ekki eins og á ungum mönnum.
"Við sjáum til í lok tímabilsins hvort kraftaverkin gerist ekki enn í þessum heimi" sagði Daníel og glotti í gegnum sársaukan.
24-12-2011
(03:51)
Villi Afgreiðir Angóla!
Villi Hólmgrímsson, leikmaður Hildibrands og U20 liðs Íslands, skoraði bæði mörk Íslands þegar lið Angóla kom í heimsókn.
Það fyrra kom á 31. mínútu eftir glæsilega aukaspyrnu þar sem hann lét boltann beygja eins og banana í loftinu og kom Íslandi í 1-0. Markvörður Angóla var sem steinrunninn á línunni og sá þetta aldrei koma enda vissi hann ekki að dæmd hefði verið aukaspyrna.
Þetta var fyrsta mark Villa fyrir landsliðið. Kappinn fagnaði því með laxaveiði Stjörnunnar. Kappinn hnyktist láréttur eftir grasinu, langar leiðir þangað til hann áttaði sig á því að enginn annar tók þátt í gjörningnum. Þeir horfðu bara á hann annað hvort hlæjandi eða hneyksaðir.
Ísland fékk svo vítaspyrnu á 39. mínútu og hinn vaski Villi steig upp og negldi boltanum í markið. 2-0 fyrir landsmenn! Nú brugðu félagar Villa sér á leik. Sex þeirra stóðu eins og keilur og einn tók félaga sinn og þeytti honum í keilurnar. Svo þutu þeir fagnandi um völlinn en eftir stóð Villi sem var ekki alveg að átta sig.
19-07-2011
(15:57)
VINASLIT?
Búist er við mikilli eftirvæntingu við leik Þórshamar og Hildibrands á komandi Sunnudag. Stjórarnir Lordbastard og Himmi eru í miklum samskiptum daglega og starfa í stjórn Félags Þýðenda og sitja einnig í starfsmannafélagi þess, "Þýðir Ekki".
Lið þeirra hafa einungis einu sinni spilað leik og var það æfingaleikur í gamla daga. Sá leikur endaði með 2-0 sigri Hildibrands en búast má við ögn meiri alvöru í leiknum næsta sunnudag þar sem LordBastard hefur verslað grimmt á leikmannamarkaðinum undanfarnar vikur en Himmi ekki neinn.
Þórshamars hefur ný lokið við að bæta við nokkrum sætum við Ásgarð, einungis fyrir þennan leik. Verða sætin svo fjarlægð fyrir næstu umferð.
Stuðningsmenn í Skálmöld og Miltisbrand munu allir mæta á völlinn ásamt fjölskyldum sín. Svo má búast við að gestir á Frönskum Dögum muni láta sjá sig svo stemningin ætti að vera Í hávegum.
Í hálfleik munu LordBastard og Himmi etjast í söngvakeppni og safna áheitum til bágstaddra útigangsmanna.
Sjáumst!