Stjarnan Berufirði
Er Stjarnan Berufirði nýja skærasta stjarnan í íslenska boltanum???
Eigandi Stjörnunar (151272) tók við liði sínu 4-19-2004 og hefur því verið ansi lengi í bransanum. Því ætti liðið að vera komið ofarlega á styrkleikalistann.
En ekki er allt sem sýnist. Fyrsta árið tóku Stjörnumenn hlutina alvarlega og tóku á öllu sem þeir áttu. En svo er eins og menn hafi lagst í dvala.
Greinilegt er að Eigandinn hefur ekki gert annað en að logga sig inn rétt í tæka tíð áður en hann missir lið sitt og það í heil sex ár.
Það var hér í eldgamla daga í fyrndinni þegar undirritaður var þjálfari Neista Djúpavogi sem Stjörnumenn komu á sjónarsviðið. Þá í 4. deild, og eru þeir þar enn.
Nú er eins og Berfirðingar hafi vaknað úr dvalanum og eru þeir byrjaðir að fjárfesta í leikmönnum í gríð og erg. og ég get sagt ykkur að þeir eru búnir að fjárfesta í leikmönnum fyrir litla 3 milljarða króna bara í ágúst.
Þið spyrjið, "hvar fá þeir alla þessa peninga?" Eigandinn hefur haft nógan tíma í öll þessi ár til þess eins að safna peningum og þrátt fyrir þessa gífurlegu eyðslu get ég fullvissað ykkur um að sjóður Stjörnunnar er langt í frá þurrausinn. Ef þetta kallast ekki þolinmæði þá veit ég ekki hvað.
Þannig að ég spyr ykkur góðir hálsar:
Er Stjarnan Berufirði nýja skærasta stjarnan í íslenska boltanum???
ps birt með góðfúslegu leifi Stjörnunnar og bachim
Kveðja
Ási
Þjálfari Þróttar Vogum (67546)
2010-09-17 21:29:43,
3449 views
Link directly to this article (HT-ML, for the forum):
[ArticleID=11294]