We use cookies - they help us provide you with a better online experience.
By using our website you accept that we may store and access cookies on your device.

Spilaði Bubbi Hattrick?

Allir þekkja Bubba Morthens en hvern hefði grunað að lagið hans "Fallegi lúserinn minn" sé í raun texti tekinn útfrá reynslu hans í Hattrick og Bubbi hefur greinilega verið að hjálpa vini sínum við fyrstu skrefin í Hattrick. Leyfið mér aðeins að sanna mál mitt áður en þið stimplið mig sem.... meiri rugludall en venjulega :)

Athugið, texti í lagi Bubba er feitletraður og skýringar þar undir

Jæja, þá er best að bara demba sér í að sanna mál mitt:



●▪· 1 erindi ·▪●

Tíminn er þinn vinur, aldrei gleyma því.
Hattrick er langhlaup en ekki spretthlaup eins og allir vita
Brostu framan í heiminn, sendu gremjuna í frí
Það þýðir ekkert að vera tapsár í Hattrick þar sem tap er hluti leiksins
Láttu goluna kissa þína heitu kinn
Vinur Bubba var glaður að hafa unnið leik
þetta er heimurinn þinn
Vinur Bubba á sinn aðgang einn og getur gert það sem honum sýnist í leiknum

●▪· Viðlag 1·▪●

Þessi garður, þessi stóll, þetta grill
Hvernig talið barst að Hattrick
þetta fólk, þetta gras, fokking brill
Fólk horfði á þá eins og þeir væru algjörir asnar en þeir vissu betur og höfðu bara gaman að því
Þessi sól, þessi dama.
Kærasta vinar Bubba var ekki sátt með tímann sem hann eyddi á Hattrick og vildi að hann hætti þessu "bulli".
Þessi nágranni er öllum til ama.
Nágranni Bubba hvartaði undann hávaða þegar var fagnað útaf marki.
Þetta er heimurinn þinn
Undirstrikun á því að þú getur gert það sem þú vilt við liðið þitt.

Þú ert fallegi lúserinn minn.
Bubbi var búinn að vera lengur en vinurinn og því gat Bubbi alltaf unnið.
Þú ert fallegi lúserinn minn.
Bubbi er að vera viss um að vinur hans sé ekkert að ofmeta Bubba neitt.

●▪· Annað erindi ·▪●

Tíminn er vinur þinn og ég elska þig.
Hattrick er langhlaup sem tekur tíma og Bubbi verður alltaf á bakvið hann sama hvað dynur á
Brostu framan í heiminn, sólin skýn á mig
Bubbi var með sterkara lið og það var ekkert sem vinurinn gat gert til að vinna hann
Láttu goluna kissa þína heitu kinn
Bubbi að benda á að þó hann hafi skorað mark gegn sér sé leikurinn ekki búinn
þetta er heimurinn þinn
Bubbi að minna vin hans á að Bubbi má ekki taka við liðinu hans meðan hann fer í frí.

●▪· Viðlag 2·▪●

Þessi garður, þessi stóll, þetta grill
Hvernig talið barst að Hattrick
þetta fólk, þetta gras, fokking brill
Fólk horfði á þá eins og þeir væru algjörir asnar en þeir vissu betur og höfðu bara gaman að því
Þessi sól, þessi dama.
Kærasta vinar Bubba var ekki sátt með tímann sem hann eyddi á Hattrick og vildi að hann hætti.
Þessi nágranni er öllum til ama.
Nágranni Bubba hvartaði undann hávaða þegar var fagnað útaf marki.
Þetta er heimurinn þinn
Undirstrikun á því að þú getur gert það sem þú vilt við liðið þitt.

Þú ert fallegi lúserinn minn.
Bubbi var búinn að vera lengur en vinurinn og því gat Bubbi alltaf unnið.
Þú ert fallegi lúserinn minn.
Bubbi er að vera viss um að vinur hans sé ekkert að ofmeta Bubba neitt.
Þú ert fallegi lúserinn minn.
Vinur hans tapar fyrir Bubba og Bubbi er sáttur
Þú ert fallegi lúserinn minn.
Bubbi reynir að hugga vin sinn yfir tapinu

●▪· Endakafli ·▪●

Þú ert fallegi lúserinn minn.
Bubbi var búinn að vera lengur en vinurinn og því gat Bubbi alltaf unnið sama hvað vinur hans reyndi.
Þú ert fallegi lúserinn minn.
Bubbi er að vera viss um að vinur hans sé ekkert að ofmeta Bubba neitt.
Þú ert fallegi lúserinn minn.
Bubbi montar sig yfir styrkleika síns liðs enn frekar
Þú ert fallegi lúserinn minn.
"Show off"

Hlustið svo á lagið með þetta til hliðsjónar ef þið trúið mér ekki:
(http://www.youtube.com/watch?v=zfb0rooFJMk&feature=related)


Takk fyrir að nenna að lesa bullið mitt (◕‿◕)

2011-06-26 15:32:03, 4461 views

Link directly to this article (HT-ML, for the forum): [ArticleID=13347]

 
Server 071